15 nóv. 2017

Aga- og úrskurðarnefnd tók fyrir þrjú mál í vikunni.

Úrskurður nr. 19/2017-2018
Hið kærða félag, Gnúpverjar, sætir áminningu og greiði sekt til KKÍ að fjárhæð kr. 20.000.
Hið kærða félag er gert skylt að gera viðeigandi ráðstafanir til að tryggja betur öryggi aðila sem koma að framkvæmd leikja.
Hægt er að lesa nánar um úrskurðinn hér.

Úrskurður nr. 23/2017-2018
Með vísan til ákvæðis b. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál, skal hinn kærði, Ingi Þór Steinþórsson, þjálfari Snæfells, sæta eins leiks banni vegna háttsemi í leik Skallagríms og Snæfells í 1. deild karla meistaraflokki sem leikinn var þann 9. nóvember 2017.

Úrskurður nr. 24/2017-2018
Með vísan til ákvæðis a. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál, skal hinn kærði, Ísak Örn Baldursson, leikmaður Snæfells, sæta áminningui vegna háttsemi í leik Snæfells og Stjörnunnar B í Íslandsmóti 10. flokki sem leikinn var þann 12. nóvember 2017.