27 des. 2017

Íslenska kvennalandsliðið hélt til Lúxemborgar í morgun á æfingamót, sem er í boði körfuknattleikssambandsins þar í landi, sem stendur yfir dagana 27.-29. desember. Á mótinu leika heimastúlkur frá Lúxemborg ásamt U20 ára liði Hollands. Liðið hélt út í morgun og mun vera við æfingar og leika æfingaleiki fram að heimför þann 30. des. 

Ívar Ásgrímsson þjálfari og aðstoðarþjálfarar hans, Bjarni Magnússon og Hildur Sigurðardóttir völdu 12 leikmenn til að taka þátt í mótinu fyrir skemmstu. Þau gerðu eina breytingu á vali sínu fyrir jól þegar ljóst var að Helena Sverrisdóttir væri á leið í atvinnumennsku í desember/janúar og völdu þau Dýrfinnu Arnardóttur frá Haukum í hennar stað.

Þar með eru það þrír nýliðar sem leika með landsliðinu á æfingamótinu, þær Isabella Ósk Sigurðardóttir og Sóllilja Bjarnadóttir, báðar frá Breiðabliki og svo Dýrfinna Arnardóttir frá Haukum.

 

Landslið Íslands á æfingamótinu í Lúxemborg:

Berglind Gunnarsdóttir · Snæfell

Birna Valgerður Benónýsdóttir · Keflavík

Dýrfinna Arnardóttir · Haukar

Elín Sóley Hrafnkelsdóttir · Valur

Guðbjörg Sverrisdóttir · Valur

Hildur Björg Kjartansdóttir · Spánn

Isabella Ósk Sigurðardóttir · Breiðablik

Ragna Margrét Brynjarsdóttir · Stjarnan

Sandra Lind Þrastardóttir · Danmörk

Sóllilja Bjarnadóttir · Breiðablik

Thelma Dís Ágústsdóttir · Keflavík

Þóra Kristín Jónsdóttir · Haukar

Aðrir leikmenn sem voru í valdar í æfingahópinn en eru ekki með:

Emelía Ósk Gunnarsdóttir · Meidd

Helena Sverrisdóttir · Leikur erlendis des.-jan. í Slóvakíu

Hallveig Jónsdóttir · Gaf ekki kost á sér að þessu sinni
Sigrún Sjöfn Ámundadóttir · Meidd