5 jan. 2018Allir handhafar aðgönguskírteina/boðskorta KKÍ þurfa að nálgast miða sína fyrirfram fyrir bikarúrslitaleikina sem fram fara miðvikudaginn 10. janúar (undanúrslit karla), fimmtudaginn 11. janúar (undanúrslit kvenna) og úrslitaleikina 13. janúar. Allir leikirnir fara fram í Laugardalshöllinni.

Ekki verður hleypt inn á leikdegi gegn framvísun aðgönguskírteina/boðskorta við hurð, heldur verður aðeins tekið við fyrirfram prentuðum miðum á viðburðinn.
 
Handhafar aðgönguskírteina/boðskorta geta sótt miðana fyrir úrslitaleikina í eigin persónu föstudaginn 5. janúar á skrifstofu KKÍ á milli kl. 09:00 og 16:00.

Handhafar korta sem búa utan höfuðborgarsvæðis:
Þeir handhafar aðgönguskírteina/boðskorta sem búa utan höfuðborgarsvæðisins geta sent tölvupóst á skrifstofu KKÍ á sama tíma (á milli kl. 09:00 og 16:00) til þess að láta taka frá fyrir sig miða sem síðan verður hægt að nálgast í Laugardalshöll á leikdegi þegar miðasala opnar gegn framvísun aðgönguskírteinis í andyri. Tölvupóstinn skal senda á kki@kki.is.

Í reglugerð um aðgönguskírteini segir meðal annars:
„Þegar um bikarúrslit og landsleiki er að ræða getur KKÍ krafist þess að rétthafar skírteina sæki aðgöngumiða gegn framvísun skírteinis og gilda þá ekki aðgönguskírteinin sjálf. Slíkt fyrirkomulag skal auglýst á heimasíðu KKÍ sem og í tölvupósti til félaga KKÍ.“