12 jan. 2018

Búið er að gefa út hverjir dæma úrslitaleiki Maltbikars karla og kvenna.

Þeir Sigmundur Már Herbertsson, Leifur Sigfinnur Garðarsson og Kristinn Óskarsson dæma úrslitaleik karla. Eftirlitsmaður KKÍ verður Gunnar Freyr Steinsson. Varadómari leiksins verður Halldór Geir Jensson.

Þeir Davíð Tómas Tómasson, Jóhannes Páll Friðriksson og Eggert Þór Aðalsteinsson dæma úrslitaleik kvenna. Eftirlitsmaður KKÍ verður Rúnar Birgir Gíslason. Varadómari leiksins verður Jóhann Gunnar Guðmundsson.