14 jan. 2018

Önnur viðureign dagsins var á milli Keflavíku og KR í stúlknaflokki.

KR byrjaði betur í leiknum en Keflvíkingar náðu tökum á leiknum og keyrðu upp muninn jafnt og þétt. Þær leiddu í hálfleik 36-23 og svo í seinni jókst munurinn. KR-ingar reyndu allt sem þær gátu að minnka muninn en sterkt lið Keflavíkur landaði sigrinum. Lokatölur 77-59 fyrir Keflavík.

Birna Valgerður Benónýsdóttir var valin besti leikmaður leiksins en hún var með 18 stig, tók 10 fráköst, gaf þrjár stoðsendingar, stal fjórum boltum og eitt varið skot. Og tapaði engum bolta.

Til hamingju Keflavík