30 jan. 2018Við lok morgundagsins, eða á miðnætti þann 31. janúar mun samkvæmt reglugerð um félagaskipti, félagaskiptaglugginn lokast í annað sinn og þar með í síðasta sinn á þessu tímabilli.

Það þýðir að engir leikmenn, íslenskir né erlendir, á öllum aldri, geta fengið félagaskipti eftir þann tíma. 

Það sama gildir um venslasamninga þar sem þeir lúta reglum um félagaskipti. Undanþága er þó sú að þau leyfi/beiðnir sem borist hafa innan tímarammans til KKÍ og verða í vinnslu fyrir lokun gluggans eru afgreidd áfram, t.d. þegar beðið er eftir leikheimild erlendis frá.


Skila má gögnum alveg fram til lokunar gluggans kl. 00:00 en athygli skal vakin á því að leikmenn sem skila inn gögnum eftir kl. 16:00 á miðvikudeginum þann 31. janúar, hljóta fyrst leikheimild á fimmtudeginum, daginn eftir, 1. febrúar kl. 09:00 eftir að þau eru afgreidd.

Innlend félagsskipti

Skila þarf félagaskiptablöðum útfylltum með undirskrift leikmanns og forsvarsmanni þess félags sem gengið er úr á skrifstofu KKÍ eða senda í tölvupósti. Greiða þarf fyrir með millifærslu eða fá undirskrift nýja félagsins ef um skuldfærslu er að ræða í þeim tilfellum sem félag greiðir fyrir skiptin. Í þeim tilfellum þar sem leikmaður er eldri en 20 ára þarf félaga sem gengið er í einnig að vera skuldlaust við KKÍ fyrir lok miðnættis þann 31. janúar.

Leikheimildir erlendra leikmanna/Óskir um Letter of Clearance (LOC)
Skila þarf inn öllum gögnum sem KKÍ fer fram á auk þess að beiðni um LOC, sé þess er þörf, skal vera kominn í gang ásamt því að félag þarf að vera skuldlaust við KKÍ. LOC frá sambandi í öðru landi má þó berast eftir 31. janúar og hlýtur leikmaður þá leikheimild frá og með þeim degi þegar það berst að því undanskyldu að öll önnur gögn/greiðslur sem krafist er hafa borist skrifstofu KKÍ og hægt sé þar með að gefa út formlega leikheimild í kjölfarið.