10 feb. 2018Í dag er komið að leikdegi hjá landsliði kvenna í undankeppni EM 2019. Stelpurnar okkar mæta Bosníu í Sarajevo kl. 16:00 að íslenskum tíma og verður leikurinn í beinni útsendingu á RÚV.

Hægt er að auki að fylgjast með lifandi tölfræði leiksins á netinu á heimasíðu keppninnar: 
fiba.basketball/womenseurobasket/qualifiers/2019

Í fyrsta landsleikjaglugganum í undankeppninni, sem fram fór í nóvember, mætti Ísland liði Svartfjallalands heima og svo liði Slóvakíu ytra. Báðir leikir töpuðust og nú eru stelpurnar að mæta Bosníu í fyrsta skipti og ætla sér að sækja sigur í dag. 

Á miðvikudaginn verða þær svo mættar niður til Svartfjallalands og leika á ný við heimastúlkur kl. 18:00 að íslenskum tíma.

Áfram Ísland!

#korfubolti