19 feb. 2018KKÍ auglýsir miðaafhendingu til korthafa fyrir landsleikina sem framunan eru hjá karlalandsliðinu.

Allir handhafar aðgönguskírteina/boðskorta KKÍ þurfa að nálgast miða sína á landsleikina tvo í undankeppni HM karla fyrirfram en Ísland mætir Finnlandi föstudaginn 23. febrúar kl. 19:45 og síðan Tékkum sunnudaginn 25. febrúar kl. 16:00. 

Ekki verður hleypt inn á leikdegi gegn framvísun aðgönguskírteina/boðskorta við hurð, heldur verður aðeins tekið við fyrirfram prentuðum miðum á viðburðinn.
 
Handhafar aðgönguskírteina/boðskorta geta sótt miðana fyrir úrslitaleikina í eigin persónu þriðjudaginn 20. febrúar á skrifstofu KKÍ á milli kl. 09:00 og 16:00.

EINNIG ER SKÝRT TEKIÐ FRAM AÐ ENGA MIÐA VERÐUR HÆGT AÐ NÁLGAST EFTIR AFHENDINGARDAGINN SÍMLEIÐIS, MEÐ TÖLVUPÓSTI EÐA ÖÐRUM SKILABOÐUM TIL STARFSMANNA SAMBANDSINS.

Almenn miðasala eftir þriðjudaginn á leikina fer fram á TIX:is.

Handhafar korta sem búa utan höfuðborgarsvæðis:
Þeir handhafar aðgönguskírteina/boðskorta sem búa utan höfuðborgarsvæðisins geta sent tölvupóst á skrifstofu KKÍ á sama tíma (á milli kl. 09:00 og 16:00) til þess að láta taka frá fyrir sig miða sem síðan verður hægt að nálgast í Laugardalshöll á leikdegi þegar miðasala opnar gegn framvísun aðgönguskírteinis í andyri. Tölvupóstinn skal senda á kki@kki.is.

Í reglugerð um aðgönguskírteini segir meðal annars:
„Þegar um bikarúrslit og landsleiki er að ræða getur KKÍ krafist þess að rétthafar skírteina sæki aðgöngumiða gegn framvísun skírteinis og gilda þá ekki aðgönguskírteinin sjálf. Slíkt fyrirkomulag skal auglýst á heimasíðu KKÍ sem og í tölvupósti til félaga KKÍ.“