22 feb. 2018

Sigmundur Már Herbertsson dæmir leik Danmerkur og Albaníu í Danmörku í kvöld. Um er að ræða leik í forkeppni að undankeppni EuroBasket 2021.

Sigmundur er aðaldómari kvöldsins og með honum dæma Juris Kokainis frá Lettlandi og Nikola Perlic frá Króatíu. Eftirlitsmaður leiksins er Mlodrag Licina frá Serbíu.

Leikurinn fer fram í Naestved í Danmörku og hefst kl. 18:15 að dönskum tíma.