16 mar. 2018

Í kvöld hefjst tvær viðureignir í 8-liða úrslitunum í Domino's deild karla þegar fyrstu leikir Hauka og Keflavíkur og Tindastóls og Grindavíkur fara fram kl. 19:15. 

Stöð 2 Sport verður í DB Schenker-höllinni og sýnir beint frá leik Hauka og Keflavíkur. Tindastóll-TV mun sýna beint á netinu á Youtube-rás sinni frá leik Tindastóls og Grindavíkur.

Kl. 21:00 er svo komið að Domino's körfuboltakvöldi á Stöð 2 Sport sem verður í beinni frá parketinu á Ásvöllum en þar verða fyrstu leikir 8-liða úrslitanna gerðir upp.

Á öllum stigum úrslitakeppninnar er leikið er heima og að heiman til skiptis. Það lið sem fyrr vinnur þrjá leiki í 8-liða úrslitunum fer í undanúrslitin í ár.

Leikjaplan allra viðureignanna, úrslit og fleira má sjá á síðu úrslitakeppninnar hér á kki.is.

8-liða úrslit karla:
🍕 Domino's deild karla
➡️ Leikir 1
⏰ 19:15
🏀 HAUKAR-KEFLAVÍK · Sýndur beint á Stöð 2 Sport
🏀 TINDASTÓLL-GRINDAVÍK · Netútsending á youtuberás Tindastóll TV

#korfubolti #dominos365