20 mar. 2018

Tveir leikir eru á dagskránni í kvöld í úrslitakeppni Domino's deildar karla kl. 19:15. Stöð 2 Sport verður á leikjunum í kvöld og sýnir beint frá þeim báðum.

Leikir kvöldsins · 8-liða úrslit karla:
🏀 Keflavík-Haukar í TM-höllinni í Keflavík (staðan er 0-1 fyrir Hauka)
🏀 Grindavík-Tindastóll, í Mustad höllinni í Grindavík (staðan er 0-1 fyrir Tindastól)

Kl. 21:00 verður Domino's Körfuboltakvöld síðan sent út í beinni frá Keflavík þar sem farið verður yfir leikina í gær og í kvöld. 

Á öllum stigum úrslitakeppninnar er leikið er heima og að heiman til skiptis. Það lið sem fyrr vinnur þrjá leiki í 8-liða úrslitunum fer í undanúrslitin í ár.

Leikjaplan allra viðureignanna, úrslit og fleira má sjá á síðu úrslitakeppninnar hér á kki.is.

8-liða úrslit karla:
🍕Domino's deild karla
➡️Leikir 2
⏰19:15
🏀KEFLAVÍK-HAUKAR · Sýndur beint á Stöð 2 Sport
🏀GRINDAVÍK-TINDASTÓLL · Sýndur beint á Stöð 2 Sport

#korfubolti #dominos365