23 mar. 2018Í kvöld er komið að leik þrjú milli Hauka og Keflavíkur og Tindastóls og Grindavíkur. Leikir kvöldsins hefjast kl. 19:15 og verða báðir sýndir beint. 

Stöð 2 Sport verður á Ásvöllum og sýnir beint frá leik Hauka og Keflavíkur.
Tindastóll-TV verður með beina netútsendingu frá leik Tindastóls og Grindavíkur. 

Staðan í einvígum liðana er 2-0 á báðum stöðum fyrir liðin sem leika á heimavelli í kvöld, lið Hauka og lið Tindastóls. 

Það lið sem fyrr vinnur þrjá leiki í sínu einvígi fer áfram í undanúrslitin en í gærkvöldi var KR fyrst liða til að tryggja sér sæti þar í ár. 

Leikir kvöldsins · Úrslitakeppnin
🍕 Domino's deild karla
➡️ 8-liða úrslit · Leikir 3
🖥 LIVEstatt á kki.is
⏰ 19:15

🏀 HAUKAR-KEFLAVÍK · Sýndur beint á Stöð 2 Sport
🏀 TINDASTÓLL-GRINDAVÍK · Sýndur beint á netinu á Tindastóll-TV

#korfubolti #dominos365