28 mar. 2018Þjálfarar U16 og U18 liða drengja og stúlkna hafa valið sín 12 manna landslið fyrir verkefni sumarsins. Þjálfararnir boðuðu til sín æfingahópa um jól og áramót og hafa fylgst með leikmönnum í leikjum og á fjölliðamótum í vetur og hafa nú valið sín endanleg lið fyrir verkefnin framundan. 

Liðin fjögur í U16 og U18 drengja og stúlkna fara öll á NM í Finnlandi í lok júní og síðan hvert og eitt í Evrópukeppni FIBA í sínum aldursflokki síðar í sumar. 

Æfingar liðanna hefjast eftir að úrslitum yngri flokka á íslandsmótinu lýkur, sem fram fara um miðjan maí og munu þjálfarar boða sína leikmenn til þeirra þegar nær dregur.

Gaman er að benda á þá staðreynd að í ár eru bæði tvíburar í U16 liði drengja og þríburar í U16 liði stúlkna og er það líklega í fyrsta sinn sem það gerist í sögu KKÍ.

Leikmenn U16 og U18 liðanna koma frá eftirtöldum félögum:
Breiðablik 2
Fjölnir 1
Grindavík 6
Hamar 2
Haukar 2
ÍR 3
Keflavík 8
KR 6
Njarðvík 4
Skallagrímur 1
Stjarnan 4
Valur 4
Vestri 2
Þór Akureyri 2
Þór Þorlákshöfn 1

Landsliðin eru skipuð eftirtöldum leikmönnum:

U16 stúlkur
Anna Margrét Lucic Jónsdóttir  Grindavík
Bríet Ófeigsdóttir Breiðablik
Edda Karlsdóttir Keflavík
Eva María Davíðsdóttir Keflavík
Gígja Marín Þorsteinsdóttir Hamar
Helga Sóley Heiðarsdóttir  Hamar
Hjördís Lilja Traustadóttir  Keflavík
Jenný Geirdal Kjartansdóttir  Grindavík
Natalía Jenný Lucic Jónsdóttir Grindavík
Thea Ólafía Lucic Jónsdóttir  Grindavík
Þórunn Friðriksdóttir  Njarðvík
Una Rós Unnarsdóttir Grindavík
Þjálfari: Árni Þór Hilmarsson
Aðstoðarþjálfari: Hallgrímur Brynjólfsson


U16 drengir
Ástþór Atli Svalason  Valur
Benóný Svanur Sigurðsson  ÍR
Friðrik Anton Jónsson  Stjarnan
Gabriel Douane Boama  Valur
Hilmir Hallgrímsson  Vestri
Hugi Hallgrímsson Vestri
Magnús Helgi Lúðvíksson  Stjarnan
Marinó Þór Pálmason  Skallagrímur
Ólafur Björn Gunnlaugsson Valur
Sveinn Búi Birgisson  KR
Viktor Máni Steffensen  Fjölnir
Þorvaldur Orri Árnason  KR
Þjálfari: Ágúst S. Björgvinsson
Aðstoðarþjálfari: Snorri Örn Arnaldsson


U18 stúlkur
Alexandra Eva Sverrisdóttir Njarðvík
Anna Ingunn Svansdóttir  Keflavík
Ásta Júlía Grímsdóttir  Valur
Ástrós Lena Ægisdóttir  KR
Birna Valgerður Benónýsdóttir Keflavík
Elsa Albertsdóttir  Keflavík
Eydís Eva Þórisdóttir  Keflavík
Eygló Kristín Óskarsdóttir  KR
Hrund Skúladóttir  Njarðvík
Kamilla Sól Viktorsdóttir  Keflavík
Ólöf Rún Óladóttir  Grindavík
Sigrún Björg Ólafsdóttir  Haukar
Þjálfari: Ingi Þór Steinþórsson
Aðstoðarþjálfari: Sævaldur Bjarnason

U18 drengir
Dúi Þór Jónsson Stjarnan
Einar Gísli Gíslason  ÍR
Hilmar Smári Henningsson  Þór Akureyri
Hilmar Pétursson  Haukar
Ingimundur Orri Jóhannsson  Stjarnan
Ingvar Hrafn Þorsteinsson  ÍR
Júlíus Orri Ágústsson  Þór Akureyri
Sigurður Sölvi Sigurðarson  Breiðablik
Sigvaldi Eggertsson KR
Styrmir Snær Þrastarson  Þór Þorlákshöfn
Veigar Áki Hlynsson  KR
Veigar Páll Alexandersson  Njarðvík
Þjálfari: Viðar Örn Hafsteinsson
Aðstooðarþjálfari: Jóhann Þór Ólafsson

U15 liðin verða tilkynnt 25. apríl og U20 æfingahópar karla og kvenna á næstu dögum.