5 apr. 2018Í kvöld er komið að upphafi undanúrslitaviðureignar Hauka og KR í Domino's deild karla. Liðin munu mætast á heimavelli Hauka, í DB Schenkerhöllinni að Ásvöllum í Hafnarfirði. 

Leikurinn hefst kl. 19:15 og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport. Lifandi tölfræði á sínum stað á kki.is.

Það lið sem fyrr vinnur þrjá leiki fer í lokaúrslitin í ár og leikur um íslandsmeistaratitilinn.
Hægt er að sjá allt um dagskrá leikja, úrslit og stöðu einvíga á kki.is/urslitakeppni.
 
Domino's deild karla · Undanúrslit
🍕 Domino's deild karla
➡️ 4-liða úrslit
🎪 DB Schenkerhöllin, Ásvöllum
⏰ 19:15

➡️ Leikur 1
🏀 HAUKAR-KR 📺 Sýndur beint á Stöð 2 Sport

🖥 LIVEstatt á kki.is

#korfubolti #dominos365