10 apr. 2018KR og Fjölnir mætast í þriðja sinn í lokaúrslitum 1. deildar kvenna í kvöld í DHL-höllinni í Frostaskjóli kl. 19:15.

Staðan í einvígi liðanna er 2-0 fyrir KR en þrjá leiki þarf til að tryggja sér sigur í einvíginu og er KR því einum leik frá því að tryggja sér sæti í Domino's deildinni að ári. Nái Fjölnir fram sigri mætast liðin að nýju í Dalhúsum á föstudaginn kemur, 13. apríl.

Lifandi tölfræði verður á sínum stað á kki.is og KRTV.is sýnir beint á netinu.

#korfubolti