16 apr. 2018Breiðablik hafði sigur gegn Hamar á föstudaginn í Smáranum í Kópavogi og þar með sigur í einvíginu um laust sæti í Domino's deildinni á næsta tímabili. Einvígið fór 3-1 fyrir Breiðablik.

Breiðablik leikur því í efstu deild karla í fyrsta sinn frá árinu 2009-2010 en frá árinu 1995 hefur Breiðablik leikið sjö tímabil í efstu deild og því verður það þeirra 8. tímabili á næsta ári. Þetta er í fyrsta sinn síðan tímabilið 1995-1996 sem Breiðablik á tvö lið í efstu deild karla og kvenna á sama tíma.

KKÍ óskar Breiðablik til hamingju með sætið í Domino's deildinni!

#korfubolti