23 apr. 2018

Kristinn Óskarsson, dómari og FIBA leiðbeinandi (FIBA Instructor) var um nýliðina helgi við störf í Noregi á vegum FIBA Europe. Haustið 2016 var Kristinn skipaður í hóp alþjóðlegra eftirlitsmanna til þess að aðstoða um tuttugu lönd í Evrópu við að bæta dómgæslu innan þeirra landa. Kristinn hefur yfirumsjón með því starfi sem unnið er í Noregi þar veitir hann dómurum endurgjöf og leiðbeiningar.