26 apr. 2018

Í kvöld er komið að risaleik í úrslitum Domino's deildar kvenna þegar Valur og Haukar mætast í Valshöllinni að Hlíðarenda kl. 18:00.

Staðan í einvíginu er 2-1 fyrir Hauka og því mun annaðhvort verða oddaleikur á mánudaginn, nái Valsstúlkur í sigur í kvöld, eða þá að íslandsmeistarabikarinn mun fara á loft takist Haukum að vinna og þar með einvígið.

Leikurinn í dag verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport og hefst hann kl. 18:00 og hvetur KKÍ körfuknattleiksaðdáendur til að fjölmenna á leikinn.

-> Saga úrslitakeppni kvenna
-> Meistaratitlar kvenna

🍕 Domino's deild kvenna
🏆 ÚRSLIT · Leikur 4
🎪 Valshöllin, Hlíðarenda
⏰ 18:00

🏀 VALUR (1) - HAUKAR (2) 📺Sýndur beint á @St2Sport

🖥 LIVEstatt á kki.is

#korfubolti #dominos365