3 maí 2018Breiðablik varð um helgina íslandsmeistari í 8. flokki drengja eftir úrslitamótið sem haldið var í Ásgarði í Garðabæ. Í A-riðli í lokaumferðinni léku ásamt Breiðablik lið Haukar, Fjölnir, Stjarnan og Njarðvík og varð lokastaða mótsins í þessari röð sem talin var hér á undan.

Breiðablik var eina liðið sem vann alla leiki sína á mótinu og voru því strákarnir krýndir íslandsmeistarar 2018. Þjálfari Breiðabliks er Halldór Halldórsson.

KKÍ óskar Breiðablik til hamingju!

#korfubolti