3 maí 2018Stjarnan varð um helgina íslandsmeistari í minnibolta 10 ára drengja eftir úrslitamótið sem haldið var í Ólafssal í Hafnarfirði. Í A-riðli í lokaumferðinni léku ásamt Stjörnunni lið Breiðabliks, Keflavík, Haukar, Ármann-b, Keflavík-c og Breiðablik-b. 

Stjarnan vann alla leiki sína á mótinu og voru því strákarnir krýndir íslandsmeistarar 2018 og Breiðablik varð í öðru sæti með fjóra sigra. Þjálfari Stjörnunnar er Árni Ragnarsson.

KKÍ óskar Stjörnunni til hamingju!

#korfubolti