3 maí 2018Úrslit yngri flokka á þessu tímabili eru síðustu viðburðir Íslandsmótsins 2017/2018 og eru jafnan hápunktur tímabilsins hjá mörgum leikmönnum í yngri flokkunum. Tímabilið í ár hefur verið mjög gott fyrir körfuboltann í landinu og hefur íslenskur körfubolti hefur sjaldan eða aldrei fengið eins mikla athygli og í ár.

Dagskrá vegna fyrri helgi úrslita yngri flokka er klár. Leikið verður í DHL-höllinni í umsjón KR.  Helgina eftir klárast úrslit yngri flokka og þá verður leikið í Njarðvík í umsjón Njarðvíkur. Dagskrá þeirrar helgar verður gefin út í lok vikunnar.  

📺 Beinar útsendingar á netinu: www.oz.com/kki
🖥 LIVEstatt allra leikja: kki.is 
📙 Leikskrá: Dagskrá og liðskipan á kki.is hérna

Úrslit yngri flokka · Fyrri helgi, DHL-höllin, Vesturbæ:

Föstudagur
Kl. 18.00 St. fl. Haukar-Njarðvík
Kl. 20.00 St. fl. Keflavík-Ármann/Valur

Laugardagur
Kl. 10.00 9. fl. st. Grindavík-Keflavík
Kl. 11.45 9. fl. st. Njarðvík-Tindastóll/Þór Akureyri
Kl. 13.30 9. fl. dr. Stjarnan-KR
Kl. 15.15 9. fl. dr. Breiðablik-Fjölnir
Kl. 17.10 dr.fl. Þór Akureyri-Stjarnan
Kl. 19.05 dr.fl. Haukar-KR
 
Sunnudagur
Kl. 09.00 Úrslitaleikur 9. fl. st.
Kl. 10.50 Úrslitaleikur 9. fl. dr.
Kl. 12.40 Úrslitaleikur stúlknaflokks
Kl. 14.45 Úrslitaleikur drengjaflokks

#korfubolti