4 maí 2018Í hádeginu í dag, föstudaginn 4. maí, verður tímabilið gert upp og veitt verða einstaklingsverðlaun í Domino´s deild karla og kvenna og 1. deild karla og kvenna.

Verðlaunahófið verður í í veislusölum nýju Laugardalshallarinnar og hefst það kl. 12:00 og hafa verðlaunahafar, forráðamenn liða og fjölmiðlafólki verið boðið.
 
Veitt verða einstaklingsverðlaun fyrir Domino's deild kvenna og karla og í 1. deild kvenna og karla.
 
Eftirfarandi verðlaun verða veitt:
 
Domino´s deild karla og kvenna
Lið ársins – fimm leikmenn
Leikmaður ársins – MVP: úr liði ársins
Besti varnarmaðurinn
Besti ungi leikmaðurinn
Besti erlendi leikmaðurinn
Prúðasti leikmaðurinn
Þjálfari ársins
Dómari ársins

1. deild karla og kvenna
Lið ársins – fimm leikmenn
Leikmaður ársins – MVP: úr liði ársins
Besti ungi leikmaðurinn
Þjálfari ársins

#korfubolti