25 maí 2018

Síðustu sumur hefur KKÍ staðið fyrir æfingabúðum fyrir úrvalshóp ungmenna. Úrvalshópurinn er undanfari yngri landsliða Ísland þar sem unglingalandsliðsþjálfarar ásamt vel völdum gestaþjálfurum fara yfir ýmis tækniatriði og stjórna stöðvaæfingum þar sem meðal annars verða æfð skottækni, sendingar, boltameðferð og sóknarhreyfingar.

 

Úrvalsbúðirnar í ár eru fyrir ungmenni fædd 2005, 2006 og 2007.

 

Æfingabúðirnar verða haldnar tvisvar í sumar og er dagskráin sú sama báðar helgarnar.

 

Fyrri helgin verður haldin dagana 26.-27. maí og sú síðari 18.-19. ágúst.

 

Staðsetningar fyrri helgar í maí:

· Drengir verða DB Schenkerhöllinni að Ásvöllum í Hafnarfirði.

· Stúlkur verða í Valshöllinni að Hlíðarenda

 

Yfirþjálfarar Úrvalsbúðana eru þau Ingi Þór Steinþórsson hjá drengjum og Ólöf Helga Pálsdóttir hjá stúlkum.

 

Hægt er að sjá tíma á æfingum og nánari upplýsingar á: kki.is/urvalsbudir