31 júl. 2018

Á morgun, miðvikudaginn 1. ágúst er komið að brottför U18 ára liðs stúlkna á Evrópumót FIBA en liðið heldur til Austurríkis þar sem leikið verður í þrem borgum, Oberwart, Gussing og Furstenfeld dagana 3.-12. ágúst.

Stelpurnar okkar leika í riðli með Finnlandi, Georgíu, Kýpur, Portúgal og Rúmeníu. Eftir fimm leiki í riðlinum verður svo leikið um öll sæti keppninnar.

Leikjaplan liðsins í riðlakeppninni er sem hér segir: (allir tímar að íslenskum tíma. +2 í Austurríki)

Ísland-Portúgal · Föstudaginn 3. ágúst kl. 14:00
Ísland-Georgía · Laugardaginn 4. ágúst kl. 16:15
Ísland-Rúmenía · Sunnudaginn 5. ágúst kl. 11:45
Frí dagur · Mánudagurinn 6. ágúst
Ísland-Kýpur · Þriðjudaginn 7. ágúst kl. 09:30
Ísland-Finnland · Miðvikudaginn 8. ágúst kl. 09:30


Allir leikir á EM yngri landsliða eru í beinni útsendingu á YouTube rás FIBA og einnig er lifandi tölfræði frá öllum leikjum þannig að mjög auðveld er að fylgjast með leikjum ÍSLANDS á EM yngri liða. 

Hér er heimasíða keppninnar með beinum útsendingum og lifandi tölfræði


ÍSLAND · U18 ára lið stúlkna
- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
Alexandra Eva Sverrisdóttir · Njarðvík
Anna Ingunn Svansdóttir · Keflavík
Ásta Júlía Grímsdóttir · Valur
Ástrós Lena Ægisdóttir · KR
Birna Valgerður Benónýsdóttir · Keflavík
Elsa Albertsdóttir · Keflavík
Eydís Eva Þórisdóttir · Keflavík
Eygló Kristín Óskarsdóttir · KR
Hrund Skúladóttir · Njarðvík
Kamilla Sól Viktorsdóttir · Keflavík
Ólöf Rún Óladóttir · Grindavík
Sigrún Björg Ólafsdóttir · Haukar

Ingi Þór Steinþórsson · þjálfari
Sævaldur Bjarnason · aðstoðarþjálfari
Halldór Karl Þórsson · aðstoðarþjálfari og fararstjóri
María Björnsdóttir · sjúkraþjálfari
Jóhannes Páll Friðriksson · FIBA dómari Íslands á mótinu

ÁFRAM ÍSLAND!

#korfubolti