8 ágú. 2018

Í gærmorgun héldu leikmenn og fylgdarlið í U16 ára landsliðs drengja út til Sarajevo í Bosníu þar sem þeir mun leika á Evrópumóti FIBA dagana 9.-18. ágúst. Liðið ferðaðist í gær og í dag eru þeir að koma sér fyrir og taka æfingu og hefja svo leik á morgun.

Strákarnir okkar leika í riðli með Finnlandi, Póllandi, Ungverjalandi, Búlgaríu og Kýpur en eftir að honum lýkur verður leikið um öll sæti keppninnar í úrslitakeppni.

Alls eru 24 lið í B-deild Evrópukeppninnar þar sem Ísland tekur þátt. 16 lið leika í A-deild og 10 lið í C-deild og því 50 af 51 evrópulöndum innan FIBA sem taka þátt í U16 keppni drengja í ár.

Leikjaplan liðsins í riðlakeppninni er sem hér segir: (allir tímar að íslenskum tíma. +2 í Bosníu)

Ísland-Finnland · Fimmtudaginn 9. ágúst kl. 19:00
Ísland-Pólland · Föstudaginn 10. ágúst kl. 16:45
Ísland-Ungverjaland · Laugardaginn 11. ágúst kl. 12:15 
 - Frídagur · Sunnudaginn 12. ágúst - 
Ísland-Búlgaría · Mánudaginn 13. ágúst kl. 19:00
Ísland-Kýpur · Þriðjudaginn 14. ágúst kl. 19:00


Allir leikir á EM yngri landsliða eru í beinni útsendingu á YouTube-rás FIBA og einnig er lifandi tölfræði frá öllum leikjum þannig að mjög auðveld er að fylgjast með leikjum ÍSLANDS á EM yngri liða. 

Hér er heimasíða keppninnar með beinum útsendingum og lifandi tölfræði:


ÍSLAND · U16 ára lið drengja
- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - 
Ástþór Atli Svalason · Valur
Benóný Svanur Sigurðsson · ÍR
Friðrik Anton Jónsson · Stjarnan
Gabriel Douane Boama · Valur
Hilmir Hallgrímsson · Vestri
Hugi Hallgrímsson · Vestri
Magnús Helgi Lúðvíksson · Stjarnan
Marinó Þór Pálmason · Skallagrímur
Ólafur Björn Gunnlaugsson · Valur
Sveinn Búi Birgisson · KR
Viktor Máni Steffensen · Fjölnir
Þorvaldur Orri Árnason · KR

Ágúst S. Björgvinsson · þjálfari
Snorri Örn Arnaldsson · aðstoðarþjálfari
Oddur Benediktsson · aðstoðarþjálfari og fararstjóri
Gunnlaugur Jónasson · sjúkraþjálfari
Davíð Tómas Tómasson · FIBA dómari Íslands á mótinu

ÁFRAM ÍSLAND!

#korfubolti #FIBAU16Europe