14 ágú. 2018

U16 ára landsliðs stúlkna hélt út í morgun til Svartfjallalands þar sem þeir mun leika á Evrópumóti FIBA dagana 16.-25. ágúst. Liðið ferðast í dag og æfir og kemur sér fyrir á morgun áður en fyrsti leikur hefst á fimmtudaginn.

Stelpurnar okkar leika í riðli með fimm þjóðum, Bretlandi, Grikklandi, Makedóníu, Svíþjóð og heimastúlkum frá Svartfjallalandi. Eftir keppni í riðlinum verður leikið um öll sæti keppninnar í úrslitakeppni. 

Alls eru 23 lið í B-deild Evrópukeppninnar þar sem Ísland tekur þátt. 16 lið leika í A-deild og 8 lið í C-deild og því 47 af 51 evrópulöndum innan FIBA sem taka þátt í U16 keppni stúlkna í ár.

Leikjaplan liðsins í riðlakeppninni er sem hér segir:
(allir tímar að neðan að íslenskum tíma. GMT+2 í Svartfjallalandi)

Ísland-Svíþjóð · Fimmtudaginn 16. ágúst kl. 11:45

Ísland-Svartfjallaland · Föstudaginn 17. ágúst kl. 18:30

Ísland-Grikkland · Laugardaginn 18. ágúst kl. 15:15

- Frídagur · Sunnudagur 19. ágúst

Ísland-Bretland · Mánudaginn 20. ágúst kl. 16:15

Ísland-Makedónía · Þriðjudaginn 21. ágúst kl. 15:15

Allir leikir á EM yngri landsliða eru í beinni útsendingu á YouTube-rás FIBA og einnig er lifandi tölfræði frá öllum leikjum þannig að mjög auðveld er að fylgjast með leikjum ÍSLANDS á EM yngri liða. 

Hér er heimasíða keppninnar með beinum útsendingum og lifandi tölfræði

ÍSLAND · U16 ára lið stúlkna

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -

Anna Margrét Lucic Jónsdóttir · Grindavík

Bríet Ófeigsdóttir · Breiðablik

Edda Karlsdóttir · Keflavík

Eva María Davíðsdóttir · Keflavík

Gígja Marín Þorsteinsdóttir · Hamar

Helga Sóley Heiðarsdóttir · Hamar

Hjördís Lilja Traustadóttir · Keflavík

Sara Lind Kristjánsdóttir · Keflavík

Natalía Jenný Lucic Jónsdóttir · Grindavík

Thea Ólafía Lucic Jónsdóttir · Grindavík

Þórunn Friðriksdóttir · Njarðvík

Una Rós Unnarsdóttir · Grindavík

Árni Þór Hilmarsson · þjálfari

Hallgrímur Brynjólfsson · aðstoðarþjálfari

Anna Urban · sjúkraþjálfari

Sara Pálmadóttir · fararstjóri

Aðalsteinn Hjartarson · FIBA dómari Íslands á mótinu

#korfubolti