13 nóv. 2018

Á æfingu kvennalandsliðsins í dag var skrifað undir nýjan samstarfsaðilasamning á milli KKÍ og Lykils til næstu tveggja ára. Lykill hefur verið öflugur samstarfsaðili KKÍ síðustu ára og það er afar ánægjulegt að Lykill verði áfram hluti af samstarfsaðilum KKÍ.

Þeir Hannes S. Jónsson formaður KKÍ og Herbert Arnarson lánastjóri Lykils undirrituðu samninginn í dag.