16 nóv. 2018Ívar Ásgrímsson og aðstoðarþjálfarar hans valið þá 12 leikmenn sem leika gegn Slóvakíu í undankeppni EM kvenna 2019. Leikurinn fer fram kl. 16:00 í Laugardalshöllinni og verður í beinni útsendingu á RÚV.

Ragnheiður Benónísdóttir, Stjörnunni, Sigrún Björg Ólafsdóttir, Haukum og Sóllilja Bjarnadóttir, Breiðablik eru þeir leikmenn hvíla af þeim 15 sem eru í landsliðshópnum en þjálfarateymið hefur tök á að endurskoða valið fyrir seinni leikinn á miðvikudaginn kemur þegar liðið mætir Bosníu.

Íslenska liðið er því þannig skipað:

# Leikmaður Félag Staða Hæð F. ár Landsleikir
1 Briet Sif Hinriksdóttir Stjarnan B 174 1996 0
3 Unnur Tara Jónsdóttir KR F 178 1989 3
4 Helena Sverrisdóttir Valur F 184 1988 68
5 Hildur Björg Kjartansdóttir Celta de Vigo F 188 1994 23
6 Hallveig Jónsdóttir Valur B 180 1995 12
8 Embla Kristínardóttir Keflavík B 170 1995 14
9 Sigrún Sjöfn Ámundadóttir Skallagrímur F 181 1988 51
10 Gunnhildur Gunnarsdóttir Snæfell F 176 1990 27
13 Þóra Kristín Jónsdóttir Haukar B 173 1997 8
15 Birna Valgerður Benónýsdóttir Keflavík M 185 2000 7
22 Berglind Gunnarsdóttir Snæfell F 177 1992 19
24 Guðbjörg Sverrisdóttir Valur B 180 1992 16

Þjálfari: Ívar Ásgrímsson
Aðstoðarþjálfari: Hildur Sigurðardóttir
Leikmannagreining: Sævaldur Bjarnason
Styrktarþjálfarar: Arnar Sigurjónsson og Bjarki Rúnar Sigurðsson
Sjúkraþjálfari: Sædís Magnúsdóttir

#korfubolti #eurobasketwomen