15 feb. 2019

Grindavík er Geysisbikarmeistari í 10. flokki stúlkna en þær unnu Njarðvík í fyrsta úrslitaleik Geysisbikarvikunnar í kvöld.

Geysisbikarvikan byrjaði á alvöru leik og var spennan fram í lokin þegar Grindavík seig fram úr og vann leikinn. Lokatölur 51-44 Grindavík í vil.

Í lokin var Viktoría Rós Horne valin maður leiksins en var með 11 stig, sjö fráköst og fjórar stoðsendingar.

Til hamingju Grindavík.