15 feb. 2019

Seinni leikur kvöldsins var viðureign Stjörnunnar og Fjölnis í 10. flokki drengja.

Stjörnumenn náðu góðri byrjun í leiknum og keyrðu upp muninn fljótlega í leiknum. Fjölnismenn náðu alrei að ógna forskoti Stjörnunnar að ráði og unnu Garðbæingar að lokum 62-53.

Maður leiksins var valinn Karl Oddur Andrason en hann var stigahæstur allra á vellinu með 16 stig. Hann tók einnig sjö fráköst.

Til hamingju Stjarnan.