16 feb. 2019

Stjarnan og Njarðvík mættust í úrslitaleik Geysisbikars karla í troðfullri höll fyrr í dag. 

Rosaleg stemning myndaðist löngu fyrir leik sem skilaði sér svo inn í frábæran leik. Fyrri hálfleikur var sannkallaður naglbítur þar sem liðin skiptust á að skora. Í seinni hálfleik var Stjarnan skrefi á undan og stóð uppi sem sigurvegari leiksins. Lokatölur leiksins 84-68.

Maður leiksins var Brandon Rozzell sem skilaði 30 stigum, 3 fráköstum og 4 stoðsendingum.

Geysis bílaleiga gaf sigurliðinu afnot af bíl frá sér í 12 mánuði fyrir sigurinn.

Til hamingju Stjarnan.