17 feb. 2019

Leikur númer tvö á úrslitadeginum stóra var leikur KR og Keflavíkur í stúlknaflokki.

Það var alvöru naglbítur í boði hjá stúlknaflokki þar sem munaði aldrei meir en einni eða tveimur körfum á liðunum.

Eftir æsispennandi lokamínútur stóð Keflavík uppi sem sigurvegari 69-73.

Anna Ingunn Svansdóttir var valin maður leiksins í leikslok en hún var með 19 stig og tíu stolna bolta. 

Til hamingju Keflavík.