17 feb. 2019

Í úrslitaleik unglingaflokks karla áttust við KR og Njarðvík en þessi lið mættust einmitt á fimmtudagskvöld í undanúrslitum Geysisbikars mfl. karla.

Það var mikill hraði í upphafi leiks og bæði lið voru klár og tibúin í að selja sig dýrt. Fyrri hálfleikur var jafn og spennandi en í þeim seinni sigu Njarðvíkingar framúr og unnu 16 stiga sigur 104-88.

Jón Arnór Sverrisson var valinn maður leiksins í leikslok en hann náði glæsilegri þrennu en hann var með 24 stig, 16 fráköst og 12 stoðsendingar.

Til hamingju Njarðvík.