17 feb. 2019

Upphafsleikur dagsins í bikarúrslitum í Laugardalshöllinni var viðureign Stjörnunnar og Hauka í 9. flokki drengja.

Þrátt fyrir að leiurinn hófst snemma voru leikmenn klárir frá fyrstu mínútu. Liðin skiptust á körfum í upphafi leiks en svo náðu Stjörnumenn smá forskoti.

Það forskot hélst út seinni hálfleikinn og unnu þeir að lokum flottan sigur 72-54.

Maður leiksins var valinn í leikslok Óskar Gabríel Guðmundsson leikmaður Stjörnunnar. Óskar var með 31 stig ásamt því að taka sex fráköst og gefa þrjár stoðsendingar.

Til hamingju Stjarnan.