17 feb. 2019

Fjórði og næstsíðasti bikarleikur dagsins var leikur Stjörnunnar og Fjölnis í drengjaflokki. Fyrirfram mátti búast við spennandi leik og það varð raunin.

Stjörnumenn voru sterkari í upphafi leiks og náðu smá forskoti en Fjölnismenn gáfust aldrei upp og komu alltaf til baka. Það réðst ekki fyrr en á lokamínútu leiksins hvort liðið yrði bikarmeistari og kom það í hlutu Stjörnunnar. Lokatölur 87-77 Stjörnunni í vil.

Dúi Þór Jónsson var valinn maður leiksins í leikslok. Dúi var með þrennu en hann setti 24 stig, gaf 12 stoðsendingar og tók 11 fráköst.

Til hamingju Stjarnan.