18 feb. 2019

Framundan eru tveir landsleikir hjá landsliði karla í forkeppni EM 2021 en eir fara fram þann 21. febrúar hér heima gegn Portúgal og 24. febrúar úti gegn Belgíu.

Ljóst er að þetta verða síðustu landsleikir Jóns Arnórs Stefánssonar og Hlyns Bæringssonar fyrir íslenska landsliðið en báðir hafa ákveðið að leggja skónna á hilluna eftir leikinn hér heima. Jón Arnór mun leika sinn 100. leik og Hlynur sinn 125. landsleik.

Craig Pedersen og aðstoðarþjálfarar hans hafa valið 17 leikmenn til æfinga fyrir leikina tvo og hófust æfingar í morgun.

Æfingahópur landsliðsins fyrir leikina tvo: 
Collin Pryor · Stjarnan
Dagur Kár Jónsson · Raiffeisen Flyers Wels, Austurríki
Elvar Már Friðriksson · Njarðvík
Gunnar Ólafsson · Keflavík
Haukur Helgi Briem Pálsson · Nanterre 92, Frakklandi
Haukur Óskarsson · Haukar
Hjálmar Stefánsson · Haukar
Hlynur Bæringsson · Stjarnan
Hörður Axel Vilhjálmsson · Keflavík
Jón Arnór Stefánsson · KR
Kristinn Pálsson · Njarðvík
Kristófer Acox · KR
Maciej Baginski · Njarðvík
Martin Hermannsson · Alba Berlín, Þýskalandi
S. Arnar Björnsson · Grindavík
Tryggvi Snær Hlinason · Monbus Obradoiro, Spánn
Ægir Þór Steinarsson · Stjarnan

#korfubolti