19 mar. 2019Á Körfuknattleiksþinginu sem fram fór á laugardaginn síðasta voru tveir einstaklingar sæmdir Gullmerki KKÍ. Það voru þeir Eyjólfur Þór Guðlaugsson og Pál. Kolbeinsson sem fengu afhent gullmerki KKÍ fyrir ómetanlegt áratuga starf fyrir körfuboltann í landinu en báðir hafa verið í stjórn KKÍ til margra ára en þeir báðir voru að láta af störfum í stjórn KKÍ á þinginu nú.

KKÍ Þakkar þeim Eyjólfi Þór og Páli allt sitt óeigingjarna starf sem þeir hafa innt af hendi undanfarin ár.

#korfubolti