5 apr. 2019Í kvöld er komið að fyrstu viðureign KR og Þór Þorlákshafnar í undanúrslitum Domino's deildar karla. Leikurinn hefst kl. 19:15 og fer fram á heimavelli KR í DHL-höllinni í Vesturbænum. Að venju þarf þrjá sigurleiki til að komast í lokaúrslitin gegn annaðhvort Stjörnunni eða ÍR sem leika í hinni undanúrslitaviðureigninni.

KR hefur hafið miðasölu á netinu á www.kr.is/midasala og þá mun BBQ-borgararnir vera á sínum stað frá k. 17:30. 
 
🏆 Undanúrslit · Leikur 1⠀
🍕 Domino's deild karla⠀
🗓 Leikur 1 · Föstudaginn 5. apríl⠀
🖥 LIFANDI tölfræði á KKI .is⠀
🎪 DHL-höllin, Vesturbæ⠀
📺 Sýndur beint á Stöð 2 Sport⠀
⏰ 19:15⠀

🏀 KR - ÞÓR Þ.⠀

#korfubolti #dominosdeildin