9 apr. 2019Úrslitakeppnir 1. deilda karla og kvenna standa nú yfir og eru lokaúrslitin í fullum gangi.

Hjá konum hefur Grindavík 2-0 forskot á Fjölni en liðin mætast í Grafarvoginum á morgun miðvikudag kl. 19:15. Það lið sem fyrr vinnur þrjá leiki leikur í Domino's deild kvenna á næsta tímabili.

Hjá körlunum leika Fjölnir og Hamar til úrslita og mætast liðin í kvöld í leik tvö í Hveragerði kl. 19:15. Fjölnir vann fyrsta leik liðanna en það lið sem fyrr vinnur þrjá leiki leikur í efstu deild að ári.

Báðir leikirnir verða í lifandi tölfræði á kki.is að venju.

#korfubolti