19 apr. 2019

Aga- og úrskurðarnefnd komst að eftirfarandi niðurstöðu.

Agamál nr. 57/2018-2019
Með vísan til ákvæðis a. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál, skal hinn kærði, Helgi Már Magnússon, leikmaður KR, sæta áminningu vegna háttsemi sinnar í leik KR og Þór Þórlákshafnar í undanúrslitum Íslandsmóts úrvalsdeildar mfl. kk. sem leikinn var þann 15. apríl 2019.