29 apr. 2019KR og ÍR mætast í þriðja sinn í kvöld í lokaúrslitum Domino's deildar karla og fer leikurinn fram í DHL-höllinni í Vesturbænum. Leikurinn hefst kl. 19:15 og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport. Húsið opnar 18:00 og BBQ-borgarar verða seldir frá kl. 17:30. 

Staðan í einvíginu um íslandsmeistaratitilinn er 1-1 en bæði lið hafa náð sér í einn sigur á útivelli. Það lið sem fyrr vinnur þrjá leiki hampar titlinum í ár.

🏆 ÚRSLIT
🍕 Domino's deild karla
3️⃣ Leikur 3
🗓 Í kvöld · Mánudaginn 29. apríl
🖥 LIFANDI tölfræði á kki.is
🎪 DHL-höllin, Vesturbæ
📺 Sýndur beint á Stöð 2 Sport
⏰ 19:15

🏀 KR (1) - ÍR (1)

#korfubolti #dominosdeildin