29 apr. 2019Á laugardaginn varð Valur Íslandsmeistari í Domino's deild kvenna árið 2019. Valsstúlkur unnu Keflavík í lokaeinvígi úrslitakeppninnar 3-0 og lyfti bikarnum í leikslok á heimavelli sínum að Hlíðarenda.

Þetta er fyrsti íslandsmeistaratitill Valskvenna.

Helena Sverrisdóttir var valinn verðmætasti leikmaður úrslitakeppninnar í leikslok en hún var með 25.0 stig, 11.9 fráköst og 7 stoðsendingar að meðaltali í úrslitakeppninni. Birgir Örn Birgis afhenti svo einnig Guðbjörgu Sverrisdóttur, fyrirliða Vals, ávísun frá Domino's til KKD. Vals upp á eina milljón krónur í verðlaunafé.

KKÍ óskar Val til hamingju með titilinn!


#korfubolti #dominosdeildin