10 maí 2019

Lokahóf KKÍ var haldið í hádeginu í dag og voru veitt verðlaun til leikmanna, þjálfara og dómara fyrir sín afrek í vetur. 

Helena Sverrisdóttir og Kristófer Acox voru valin bestu leikmenn Domino's deildanna en þaú voru einnig valin bestu leikmenn síðasta tímabils. Þjálfarar ársins voru þeir Borche Ilievski hjá ÍR og Benedikt Guðmundsson hjá KR.

Lið ársins og önnur verðlaun voru eftirfarandi:

Domino’s-DEILD KVENNA 2018-2019 

BESTI VARNARMAÐUR Domino’s deildar kvenna 2018-2019
Auður Íris Ólafsdóttir · Stjarnan 

BESTI UNGI LEIKMAÐUR Domino’s deildar kvenna 2018-2019
Birna Valgerður Benónýsdóttir · Keflavík

PRÚÐASTI LEIKMAÐUR Domino’s deildar kvenna 2018-2019 (valið af dómurum)
Þóra Kristín Jónsdóttir · Haukar

BESTI ERLENDI LEIKMAÐUR Domino’s deildar kvenna 2018-2019
Brittanny Dinkins · Keflavík  

BESTI ÞJÁLFARI Domino’s deildar kvenna 2018-2019
Benedikt Guðmundsson · KR

ÚRVALSLIÐ Domino’s-DEILDAR KVENNA 2018-2019 
Þóra Kristín Jónsdóttir · Haukar
Gunnhildur Gunnarsdóttir · Snæfell                      
Helena Sverrisdóttir · Valur                       
Bríet Sif Hinriksdóttir · Stjarnan                  
Bryndís Guðmundsdóttir · Keflavík                                      

BESTI LEIKMAÐUR Domino’s deildar kvenna 2018-2019 
Helena Sverrisdóttir · Valur

BESTI DÓMARI Domino’s deilda karla og kvenna 2018-2019  (Báðar deildir)
Sigmundur Már Herbertsson 



Domino’s-DEILD KARLA 2018-2019 

BESTI VARNARMAÐUR Domino’s deildar karla 2018-2019
Ægir Þór Steinarsson · Stjarnan

BESTI UNGI LEIKMAÐUR Domino’s deildar karla 2018-2019 (f. 2000 eða síðar)
Hilmar Smári Henningsson · Haukar 

PRÚÐASTI LEIKMAÐUR Domino’s deildar karla 2018-2019 (valið af dómurum)
Ægir Þór Steinarsson · Stjarnan

BESTI ERLENDI LEIKMAÐUR Domino’s deildar karla 2018-2019
Julian Boyd · KR

BESTI ÞJÁLFARI Domino’s deildar karla 2018-2019
Borche Ilievski · ÍR    

ÚRVALSLIÐ Domino’s DEILDAR KARLA 2018-2019
Matthías Orri Sigurðarson · ÍR
Ægir Þór Steinarsson · Stjarnan
Kristófer Acox · KR
Hlynur Bæringsson · Stjarnan
Sigurður Gunnar Þorsteinsson · ÍR

BESTI LEIKMAÐUR Domino’s deildar karla 2018-2019
Kristófer Acox · KR