14 maí 2019

Um helgina var leikið til úrslita á íslandsmótinu í 9. flokki stúlkna Origo-höllinni á fyrri úrslitahelgi yngri flokka 2019. 

Það var lið Grindavíkur sem stóð uppi sem Íslandsmeistari 2019.

Grindavík sigraði Þór Þ./Hrunamenn í undanúrslitunum en í hinum undanúrslitaleiknum var það Keflavík sem hafði betur gegn Njarðvík. Í úrslitaleiknum vann Grindavík lið Keflavíkur en lokatölur leiksins urðu 49:46.

Þjálfari liðsins er Ellert Magnússon.

Hekla Eir Nökkvadóttir var valin besti leikmaður úrslitaleiksins en hún var með 27 stig og 10 fráköst.

KKÍ óskar Grindavík til hamingju með titilinn!

#korfubolti