20 maí 2019

Um helgina var leikið til úrslita á íslandsmótinu í unglingaflokki karla í Mustad-höllinni á seinni úrslitahelgi yngri flokka 2019.


Það var lið Breiðabliks sem stóð uppi sem Íslandsmeistari 2019.

Breiðablik sigraði KR í undanúrslitunum en í hinum undanúrslitaleiknum var það Njarðvík sem hafði betur gegn Fjölni. Í úrslitaleiknum vann Breiðablik lið Njarðvíkur en lokatölur leiksins urðu 81:76.

Þjálfari liðsins er Smári Hrafnsson.

Sveinbjörn Jóhannesson var valinn besti leikmaður úrslitaleiksins en hann var með 14 stig, 9 fráköst og 5 stoðsendingar.

KKÍ óskar Breiðablik til hamingju með titilinn!

#korfubolti