20 maí 2019Um helgina var leikið til úrslita á íslandsmótinu í 10. flokki stúlkna í Mustad-höllinni á seinni úrslitahelgi yngri flokka 2019.
 
Það var lið Grindavíkur sem stóð uppi sem Íslandsmeistari 2019.

Grindavík sigraði Tindastól/Þór Akureyri í undanúrslitunum en í hinum undanúrslitaleiknum var það Njarðvík sem hafði betur gegn Keflavík. Í úrslitaleiknum vann Grindavík lið Njarðvíkur en lokatölur leiksins urðu 45:32.

Þjálfari liðsins er Ellert Magnússon.

Júlía Ruth Thasaphong var valinn besti leikmaður úrslitaleiksins en hún var með 12 stig, 11 fráköst og 3 stoðsendingar.

KKÍ óskar Grindavík til hamingju með titilinn!

#korfubolti