1 jún. 2019Nú eru öllum leikjum Íslands lokið á Smáþjóðaleikunum 2019 í Svartfjallalandi og eftir tvo sigurleiki hjá okkar liðum á karla og kvennaliði Kýpverja þá er ljóst að kvennaliðið hafnar í öðru sæti, með einn tapleik gegn heimastúlkum og fjóra sigurleiki og strákarnir lenda í þriðja sæti með tvo sigra og tvö töp, sigra gegn Möltu og Kýpur og töp gegn Lúxemborg og Svartfjallalandi.

Verðlaunafhending fer fram í kvöld og birtum við myndir af því á facebook-síðu okkar á eftir ásamt umfjöllunum um leikina tvo.


#korfubolti