20 jún. 2019Í morgun lögðu U15 ára lið stúlkna og drengja af stað frá Keflavíkurflugvelli á leiði sinni til Danmörku en þar munu liðin taka þátt í hinu árlega verkefni U15 liða KKÍ, alþjóðlega mótinu Copenhagen-Invitational, sem fer fram í Farum í Kaupmannahöfn.

Þar leika liðin okkar fimm leik hvort, en fyrst er leikið í riðlum föstudag og laugardag og svo um sæti á sunnudaginn.
Alls fara 18 leikmenn í hvoru liði ásamt þjálfurum liðanna, yfirþjálfara KKÍ, sjúkraþjálfara og tveim dómurum á vegum KKÍ.


Undanfarin ár hefur Ísland sent tvö níu manna lið stúlkna og drengja til leiks sem gefur fleiri leikmönnum tækifæri og fleiri mínútur til að spreyta sig á mótinu en U15 verkefnið er yngsta landsliðsþrepið og því 36 leikmenn að fara leika sínu fyrstu landsleiki um helgina fyrir Íslands hönd.

Hægt er að fylgjast með gangi mála á síðu mótsins, facebook-síðu mótsins sem og á facebook-síðu KKÍ að auki. Þá er í boði að kaupa sér streymisaðgang frá leikjunum einnig fyrir lítið gjald.

Heimasíða mótsins: www.cph-invitational.dk/
FB-síða mótsins: www.facebook.com/CopenhagenInvitational/
Streymi frá leikjum: www.solidsport.com/copenhageninvitational

Íslenski hópurinn er skipaður eftirfarandi leikmönnum og fylgdarliði:

U15 ára lið stúlkna (tvö 9 manna lið)
Agnes María Svansdóttir · Keflavík
Agnes Perla Sigurðardóttir · Keflavík
Anna Lára Vignisdóttir · Keflavík
Ásdís Hjálmrós Jóhanesdóttir  · Njarðvík
Bergþóra Káradóttir · Keflavík
Dagbjört Gyð Hálfdánardóttir · Haukar
Emma Sóldís Hjördísardóttir · KR
Fjóla Bjarkadóttir · Grindavík
Gréta Proppé Hjaltadóttir · Vestri
Hekla Eik Nökkvadóttir · Grindavík
Ingibjörg Bára Pálsdóttir · Hrunamenn
Karlotta Ísól Eysteinsdóttir · Njarðvík
Krista Gló Magnúsdóttir · Njarðvík
Kristína Kartrín Þórsdóttir · Stjarnan
Rannveig Guðmundsdóttir · Njarðvík
Rebekka Rut Hjálmarsdóttir · Grindavík
Sigurbjörg Sigurpálsdóttir · Grindavík
Unnur Stefánsdóttir · Grindavík

U15 ára lið drengja (tvö 9 manna lið)
Ágúst Goði Kjartansson · Haukar
Alexander Finnsson · Skallagrímur
Almar Orri Atlason · KR
Arnar Freyr Tandrason · Breiðablik
Aron Elvar Dagsson · ÍA
Aron Kristian Jónasson · Stjarnan
Aron Orri Hilmarsson · ÍR
Breki Rafn Eiríksson · Breiðablik
Daníel Ágúst Halldórsson · Fjölnir
Elías Pálsson · Njarðvík
Guðmundur Aron Jóhannesson · Fjölnir
Hákon Helgi Hallgrímsson · Breiðablik
Haukur Davíðsson · Hamar
Hringur Karlsson · Hrunamenn
Jónas Bjarki Reynisson · Skallagrímur
Karl Ísak Birgisson · Fjölnir
Óskar Gabríel Guðmundsson · Stjarnan
Róbert Sean Birmingham · Njarðvík

Þjálfarar og fylgdarlið:
Kristjana Eir Jónsdóttir · þjálfari
Ólöf Helga Pálsdóttir · þjálfari
Lárus Jónsson · þjálfari
Halldór Karl Þórsson · þjálfari
Finnur Freyr Stefánsson · yfirþjálfari yngri landsliða KKÍ
Anna Urban · sjúkraþjálfari
Birgir Örn Hjörvarsson · dómari
Bjarki Þór Davíðsson · dómari


#korfubolti