27 jún. 2019Í dag er komið að fyrsta leikdegi okkar liða á NM 2019 í Finnlandi þar sem U16 og U18 ára lið Íslands taka þátt. Öll liðin spila alla daga og við hefjum leik á norska deginum.

Mikil tilhlökkun er í íslenska hópnum að hefja leik enda búið að æfa vel fram að móti. Mótherjar dagsins er Noregur en íslensku liðunum hefur í gegnum tíðina gengið ágætlega með frændur okkar frá Noregi. Spennandi verður að sjá hvernig liðin mæta til leiks þetta árið en margir spennandi leikmenn eru á meðal þátttakenda í ár.

Fimmtudagur 27. júní · Leikir Íslands við Noreg að íslenskum tíma í Kisakallio í Finnlandi:
Kl. 10:30 U16 stúlkur á velli SUSI 3
Kl. 10:45 U18 stúlkur á velli SUSI 2
Kl. 12:45 U18 drengir á velli SUSI 1
Kl. 12:45 U16 drengir á velli SUSI 3

Lifandi tölfræði og beinar netútsendingar:
Lifandi tölfræði og dagskrá leikja má finna á basket.fi/nc2019
Bein netútsending frá öllum leikjum mótsins: youtube.com/user/basketfinland

#korfubolti