11 júl. 2019U20 karla héldu í gærmorgun af stað til Portúgals og gekk ferðalagið þeirra vel. Þar komu þeir sér fyrir og í dag eru þeir að æfa og á morgun hefst mótið  sjálft í riðlakeppninni. Ísland leikur í A-riðli með Ungvarjalandi, Írlandi, Hvíta-Rússlandi og Rússlandi. Eftir leiki í riðlinum taka svo við leikir í úrslitum og um sæti.

Fyrsti leikur okkar drengja verður gegn Hvít-Rússum kl. 19:30 að íslenskum tíma (20:30 úti GMT+1).

Hægt er að sjá alla dagskrá og nánari upplýsingar um mótið auk þess að hægt er að fylgjast með lifandi tölfræði og beinum netútsendingum frá öllum leikjunum á heimasíðu mótsins: www.fiba.basketball/europe/u20b/2019

Í U20 karla senda 37 þjóðir í Evrópu lið til keppni þetta sumarið , 16 eru í A-deild og 21 í B deild. 14 þjóðir innan FIBA Europe senda ekki lið til keppni í U20 karla þetta sumarið.

Í vetur var valinn 12 manna lið og varamenn einnig sem hafa hæft með liðinu. Síðan þá hafa tveir leikmenn  þurft að draga sig úr lokaliðinu vegna meiðsla, en það voru þeir Hákon Örn Hjálmarsson ÍR og Andrés Ísak Hlynson, KR, og komu nýjir leikmenn í þeirra stað.  Íslenska liðið og hópurinn er því þannig skipaður á mótinu:

U20 karla
Arnór Sveinsson · Njarðvík
Bergvin Stefánsson · Njarðvík
Bjarni Guðmann Jónsson · Skallagrímur
Björn Ásgeir Ásgeirsson · Hamar
Egill Agnar Októsson · Fjölnir
Einar Gísli Gíslason · ÍR
Gabríel Sindri Möller · Njarðvík
Hilmar Pétursson · Breiðablik
Hilmar Smári Henningsson · Haukar
Hlynur Logi Ingólfsson · Fjölnir
Orri Hilmarsson · KR
Rafn Kristjánsson · Fjölnir

Þjálfari: Ágúst S. Björgvinsson
Aðstoðarþjálfarar: Halldór Steingrímsson og Oddur Benediktsson
Sjúkraþjálfari: Inga Arna Aradóttir

#korfubolti